Annar í EM

By 08em

Austurríki 0 – 1 Króatía

Smelltu hér til að sjá markið (tekið af sapo.pt)
Modric 5′ (vítaspyrna) (Austurríki 0 – 1 Króatía)


Þýskaland 2 – 0 Pólland


Podolski 20′ (Þýskaland 1 – 0 Pólland)
Podolski 72′ (Þýskaland 2 – 0 Pólland)


Staðan í B riðli:

  Mörk Stig
1. Þýskaland 2:0 3
2. Króatía 1:0 3
3. Austurríki 0:1 0
4. Pólland 0:2 0

P.s. Það er stundum frekar erfitt að finna video highlights úr leikjunum á Youtube vegna þess að UEFA eru frekar strangir á höfundarétt efnisins. Þannig ég mun af og til linka yfir á myndbönd af síðunni sapo.pt.

 

5 svör to “Annar í EM”

  1. Bjarki segir:

    Vá hvað mér líst ekkert á þetta!:

    þróttir | AFP | 9.6.2008 | 11:29
    Cruyff gagnrýnir Van Basten

    Johan Cruyff, fyrrum landsliðsstjarna hollenska landsliðsins í knattspyrnu, segist ekki kunna að meta leikstíl landa sinna undir stjórn Marco Van Basten, en Holland mætir í kvöld heimsmeisturum Ítala í stórleik fyrstu umferðar Evrópumótsins í ár.

    Hollendingar hafa löngum verið þekktir fyrir að spila skemmtilegan og sóknarmiðaðan fótbolta en Cruyff er ekki viss um að slíkt verði upp á teningnum að þessu sinni.

    „Við erum með gott lið. Leikaðferðin sem það notar er hins vegar ekki alveg að mínu skapi. Bakverðirnir eru ekki nægilega hugmyndaríkir í sínum leik og leggja ekki nógu mikið af mörkum þegar við erum með boltann,“ sagði Cruyff í samtali við hollenska dagblaðið De Telegraaf.

    Fjarvera hinna örvfættu Ryan Babel, Arjen Robben og hugsanlega Robin Van Persie veldur Cruyff einnig áhyggjum. „Þetta gerir liðinu alla vega ekki auðveldara fyrir. Þessir leikmenn spila djúpt og skapa mikið pláss. Við eigum eftir að sakna þeirra.“

  2. Erla Bumba segir:

    Heyrðu ég er bara sammála þessum manni! Þeir voru í rangstöðu þegar þeir skoruðu fyrsta markið og það er bara svindl! Sérstaklega þar sem mig langar að vinna!!;)

  3. Eiki segir:

    Þið getið alveg sleppt því að kvabba yfir þessu. Því að Spán rúlar þessu upp og ég + því miður Ívar líka sölsum undir okkur varninginn :D

  4. Bjarki segir:

    Ívar færði sig yfir á Króatíu áður en EM byrjaði, þannig þú ert einn með Spán :)

    Fimm og hálfur kassi í pottinum! :)

  5. Eiki segir:

    Yeah!!!

Skildu eftir svar